Greind/Þjónusta
Hvað fær fyrirtækið?

Stjórnendatæki, ekki ráðgjafaskýrsla.

Virðið liggur í greiningunni, ekki tækninni. Með því að greina tækifærin út frá ferlum, gögnum og þekkingu sjást réttu tækifærin. Þeim er forgangsraðað eftir virði og raunhæfni. Hver afurð er sett fram svo stjórnandi geti skilið hana á innan við mínútu.

68/100
Trauststuðull 91%
01 · Stjórnendamæling

Greind Stöðuvísir

Heildarstaða fyrirtækisins í einni tölu á bilinu 0–100. Svarar spurningunni: hversu vel er fyrirtækið í stakk búið til að nýta gervigreind á markvissan hátt? 60–79 þýðir góð staða. Mörg tækifæri til staðar og hægt að hefja valin AI verkefni.

StefnaFerlarÞekking GögnÁbyrgðFólk
02 · Yfirlit

Hitakort

Staða á sex sviðum með grænu, gulu og rauðu. Þetta er oft fyrsta síðan sem stjórnendur skoða, hún sýnir strax hvar fyrirtækið stendur sterkt, hvar áhættan liggur og hvar tækifærin eru. Grænt 75–100, gult 50–74, rautt 0–49.

03 · Jafnvægi

Sviðaskor

Radarmynd af styrk og veikleikum yfir sviðin sex. Mjög öflug í stjórnendakynningum. Hún sýnir strax hvort fyrirtækið er stefnumiðað en gagnasnautt, tæknilega sterkt en menningarlega veikt, eða með góða ferla en litla stjórnun.

AI leit í skjölumÞekkingHátt
Sjálfvirk skýrslugerðFerlarHátt
Spurt & svarað fyrir starfsfólkÞekkingMið
Sjálfvirk gagnaflokkunGögnMið
04 · Tækifærin

Tækifæraskrá

Forgangsraðað yfirlit yfir raunhæf tækifæri, flokkuð eftir framleiðni, þekkingu, ferlum og ákvarðanatöku. Hvert tækifæri er metið út frá virði, flækjustigi, áhættu og þeim forsendum sem þurfa að vera til staðar.

VirðiFlækjustig
05 · Forgangur

Forgangskort

Verkefnin sett upp eftir viðskiptavirði og flækjustigi. Fljótlegir sigrar (hátt virði, lágt flækjustig) annars vegar, stefnumótandi byggingarverkefni hins vegar, og það sem á að bíða. Hjálpar stjórnendum að velja rétt verkefni, ekki bara mörg.

Eignarhald
Kostnaðarstýring
Módelstefna
Shadow AI
Öryggi
06 · Stjórnarhættir

AI Stjórnunarkort

Sérstaða Greindar. Metur hversu vel fyrirtækið stjórnar notkun gervigreindar: eignarhald, kostnaðarstýringu, módelstefnu, Shadow AI, aðgangsstýringu, öryggi, persónuvernd og virðismælingu. Þessi síða verður sérstaklega mikilvæg fyrir fjármálastjóra.

Mælt meðAI leit í skjölum, byrja á 0–90 dögum
Mælt meðÞekkingargrunnur fyrir onboarding
Ekki núnaSjálfvirkir agentar í þjónustuveri
07 · Ákvarðanir

Ákvörðunarskrá stjórnenda

Skýr „mælt með / ekki mælt með" fyrir hvert tækifæri, með rökstuðningi. Stjórnendateymið fær ekki bara lista yfir möguleika heldur afstöðu: hvað á að gera núna, hvað á að bíða og hvers vegna.

0–90 dagar
3–12 mán.
12–24 mán.
08 · Leiðin áfram

AI Vegvísir

Forgangsraðuð aðgerðaáætlun í þremur tímabilum: fljótlegir sigrar á 0–90 dögum, grunnurinn byggður á 3–12 mánuðum og stefnumótandi verkefni á 12–24 mánuðum. Vegvísirinn er ekki lokatakmark. Hann er upphafið að betri framkvæmd og grunngagnið í allri AI stefnumótun til framtíðar.

Hver síða á að standa ein og sér.

Framkvæmdastjóri eða stjórnarmaður á að geta opnað eina síðu, skoðað hana í innan við mínútu og skilið stöðu fyrirtækisins, helstu áskoranir og mikilvægustu næstu skref.

Greind AI Vegvísisskýrsla

10–20 blaðsíðna stjórnendaskýrsla sem safnar öllum afurðunum saman í eina heild: staða, tækifæri, áhættur og leiðin áfram.

Lokakynning

60–90 mínútna stjórnendafundur þar sem niðurstöðurnar eru kynntar svo hægt sé að taka ákvarðanir strax, og kynna áfram fyrir stjórn.

Næsta skref

Sjáðu þessar afurðir fyrir þitt fyrirtæki

Bókaðu 30 mínútna kynningarfund og fáðu fyrstu sýn á hvar fyrirtækið þitt stendur, og hvert það getur farið.