Afbókunar- og greiðsluskilmálar
Hvernig greiðsla, afbókun og breytingar á skráningu virka.
Síðast uppfært: 9. ágúst 2026
Greiðsla
Eftir skráningu á vefnum er staðfesting send í tölvupósti og krafa stofnuð í heimabanka greiðanda með gjalddaga. Sæti er frátekið við skráningu og staðfest við greiðslu. Aðgangur að þátttakendagátt er sendur eftir að greiðsla er staðfest.
Afbókun þátttakanda
Afbókun með fullri endurgreiðslu er heimil til 7 dögum fyrir fyrstu lotu. Eftir það er ekki endurgreitt. Fresturinn miðast við dagsetningu vinnustofunnar, ekki greiðsludag. Óskir um afbókun eða breytingu skulu sendar skriflega á sverrir@greind.com og taka gildi þegar Greind hefur staðfest þær skriflega.
Skipti og flutningur
Alltaf má senda annan þátttakanda í stað þess sem skráður er, án kostnaðar. Einnig má óska eftir flutningi í annan hóp eftir framboði, fyrir upphaf vinnustofu. Greind metur sérstakar aðstæður, svo sem veikindi, hverju sinni.
Afbókun af hálfu Greindar
Ef Greind fellir vinnustofu niður býðst greiðanda full endurgreiðsla eða flutningur í annan hóp.
Réttindi
Skilmálarnir skerða ekki réttindi sem ekki er heimilt að afsala sér samkvæmt lögum.
Hafa samband
Spurningar má senda á sverrir@greind.com.