Greind/Vaki
Í þróun · Pilotverkefni
Vaki · Yfirsýn og eftirfylgni

Sjáðu hvað gervigreindin gerir. Haltu stjórn á því sem skiptir máli.

Vaki safnar saman upplýsingum um notkun, gæði, kostnað og ábyrgð í AI-vinnuferlum. Stjórnendur og ábyrgðaraðilar fá yfirsýn til að bæta það sem virkar og grípa inn í þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Þegar AI dreifist verður heildarmyndin ósýnileg.

Starfsfólk notar fleiri tól, agentar framkvæma fleiri skref og kostnaður dreifist um áskriftir og módel. Án sameiginlegrar yfirsýnar er erfitt að sjá hvað er notað, hvað það kostar, hvaða niðurstöðum er treyst og hver ber ábyrgð.

Mælikvarðarnir

Yfirsýn sem tengir tæknina við reksturinn.

01

Notkun

Hvaða lausnir og vinnuferli eru notuð, hvar og hversu oft.

02

Kostnaður

Áskriftir, módelnotkun og kostnaður eftir teymum eða verkefnum.

03

Gæði

Mat notenda, prófanir, frávik og gæði niðurstaðna.

04

Rekjanleiki

Hvaða prompt, módel, útgáfa og gögn komu að niðurstöðu.

05

Ábyrgð

Eigendur lausna, samþykktir og mannleg inngrip.

06

Ávinningur

Tími, afköst eða rekstrarlegt virði þar sem hægt er að mæla það.

Yfirsýnin

Ein mynd af AI-notkun fyrirtækisins.

Vaki · Yfirsýn síðustu 30 daga Sýnidæmi
Virk AI-vinnuferli143 í prófun
Notkun · 30 dagar2.418 keyrslur
Áætlaður kostnaður184 þús.kr. í mánuðinum
Mannlegar samþykktir96%þar sem krafist er
Mest notuðu vinnuferli
Skjalaleit812
Samantektir funda605
Drög að svörum454
Gagnayfirferð312
Minnisblöð235
Gæðamat, frávik og viðvaranir
Gæðamat 4,4 af 5 · mat notenda á niðurstöðum
Frávik: Skjalaleit svaraði án heimildar í 2 tilvikum
Viðvörun: módelkostnaður í teymi B yfir viðmiði
Rekjanleiki: ný útgáfa prompts í drögum að svörum
Ábyrgð: allir eigendur vinnuferla skráðir
Hringrásin

Frá notkun yfir í umbætur.

Vaki safnar ekki gögnum bara til að sýna mælaborð. Markmiðið er að finna mynstur, bæta vinnuferli, draga úr óþarfa kostnaði og gera ábyrgð sýnilega.

NotkunAI-vinnuferli keyrð í daglegri vinnu
RekjanleikiSkref, módel og gögn skráð
MatGæði, kostnaður og virði metin
ViðvörunFrávik og áhætta gerð sýnileg
UmbæturVinnuferli bætt og lærdómur nýttur
Notkunartilvik

Þar sem yfirsýnin skiptir máli.

AI-kostnaðarstýring

Sjá hvar kostnaður myndast og hvaða notkun skilar virði.

Gæðaeftirlit

Fylgjast með niðurstöðum, mati notenda og endurteknum frávikum.

Agentar og sjálfvirkni

Rekja skref, verkfæri, mannlegar samþykktir og niðurstöðu.

Stjórnarhættir

Skrá eigendur, ábyrgð, reglur og samþykkt vinnuferli.

Samanburður

Bera saman módel, prompt og útgáfur með raunhæfum mælikvörðum.

Pilot-ferlið

Byrjum á einu mikilvægu vinnuferli.

1

Velja

Eitt afmarkað AI-vinnuferli valið.

2

Mæla

Notkun, kostnaður, gæði og ábyrgð skilgreind.

3

Tengja

Viðeigandi atburðir og rekjanleiki tengd við Vaka.

4

Læra

Niðurstöður yfirfarnar og vinnuferlið bætt.

Algengar spurningar

Spurt um Vaka

Er Vaki öryggis- eða regluvörslukerfi?

Vaki styður yfirsýn, rekjanleika og ábyrgð, en kemur ekki í stað sérhæfðra öryggis- eða regluvörslukerfa.

Þarf að fylgjast með öllum AI-notkunartilvikum?

Nei. Best er að byrja á mikilvægustu eða áhættumestu vinnuferlunum.

Mælir Vaki ávinning?

Þar sem raunhæfir mælikvarðar eru til staðar getur Vaki tengt notkun við tíma, kostnað, gæði eða afköst.

Getur Vaki fylgst með agentum?

Vaki er hannaður til að rekja fjölskrefa AI-vinnuferli og mannleg inngrip þegar viðeigandi tengingar eru til staðar.

Næsta skref

Gerum fyrsta AI-vinnuferlið sýnilegt.