Persónuverndarstefna Greindar
Stutt yfirlit yfir hvernig Greind vinnur persónuupplýsingar í tengslum við vefinn og vinnustofur Greindar.
Síðast uppfært: 9. ágúst 2026
Um stefnuna
Þessi stefna útskýrir í stuttu máli hvaða persónuupplýsingar Greind vinnur í tengslum við vefinn greind.com og vinnustofur Greindar, í hvaða tilgangi og hvaða réttindi þú hefur.
Ábyrgðaraðili
Greind er ábyrgðaraðili vinnslunnar. Fyrirspurnum um persónuvernd má beina á sverrir@greind.com.
Hvaða upplýsingar og hvers vegna
- Fyrirspurnir og áhugaskráningar: nafn, netfang og það sem þú skrifar til okkar. Notað til að svara erindinu og fylgja því eftir.
- Skráning á vinnustofu: upplýsingar um þátttakendur og greiðanda, þar á meðal kennitala greiðanda sem er notuð til að stofna kröfu í heimabanka. Notað til að afgreiða skráninguna, senda staðfestingar og veita aðgang að þátttakendagátt.
- Þátttakendagátt: aðgangur er stofnaður með netfangi þátttakanda og varinn með tvíþættri auðkenningu.
- Vefmælingar: samandregnar upplýsingar um notkun vefsins sem ekki eru nýttar til að auðkenna einstaklinga.
Miðlun og varðveisla
Greind notar viðurkennda þjónustuaðila við rekstur vefsins, póstsendingar og skráningar. Upplýsingum er ekki miðlað til annarra nema það sé nauðsynlegt vegna þjónustunnar eða skylt samkvæmt lögum. Upplýsingar eru ekki geymdar lengur en þörf krefur. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við lög.
Réttindi þín
Þú getur, þegar það á við, óskað eftir aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu eða eyðingu þeirra, með því að hafa samband á sverrir@greind.com. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar.
Breytingar og samband
Stefnan getur breyst og gildir sú útgáfa sem birt er hér hverju sinni. Spurningar má senda á sverrir@greind.com.