AI sem aðstoðarmaður í bókhaldinu, ekki staðgengill bókarans.
Verkleg vinnustofa fyrir íslenska bókara sem vilja nota gervigreind til að vinna hraðar og markvissar, án þess að gefa eftir faglega ábyrgð, trúnað eða mannlega yfirferð.
Ekki fyrirlestur um framtíðina.
Þú mætir með fartölvu, vinnur í þínu eigin AI-tóli og byggir upp eigin AI-vinnuaðstöðu. Við notum raunhæf bókhaldsverkefni, æfum yfirferð og búum til verklag sem hægt er að endurnýta eftir vinnustofuna.
Gervigreind leysir bókarann ekki af hólmi. En bókari sem kann að beita henni afkastar meiru og skilar betri vinnu.
Sýnikennslan fer fram í Claude, verkfærinu sem við notum sjálf í daglegri vinnu.
ChatGPT-áskrift dugar jafn vel. Við sýnum hvernig sömu verkefni eru leyst í ChatGPT þegar það á við.
Fyrir bókara sem vilja komast frá tilraunum yfir í faglegt vinnulag.
- Sjálfstætt starfandi bókara
- Starfsfólk bókhaldsstofa
- Bókhalds- og fjármálateymi fyrirtækja
- Reynda bókara sem vilja bæta vinnulag
- Byrjendur í AI sem vilja öruggan og hagnýtan grunn
Þú lærir allt sem skiptir bókara máli. Engin froða.
Setja upp öruggt vinnuumhverfi, hvort sem þú notar Claude eða ChatGPT.
Aðskilja viðskiptavini og verkefni með skýru samhengi.
Búa til gagnlegar verkefnaleiðbeiningar.
Gefa AI rétt samhengi, til dæmis reikningslykla, verklag og reglur.
Skrifa skýr prompt sem skila yfirferðarhæfum drögum.
Nota tvö módel til að skipuleggja, gagnrýna og bæta niðurstöður.
Búa til samantektir, tölvupósta, minnisblöð og gátlista.
Styðja afstemmingar og yfirferð gagna úr Excel.
Búa til mánaðarlokagátlista og endurtekin vinnuferli.
Nota AI við fyrstu yfirferð reikninga og VSK-spurninga með mannlegri staðfestingu.
Búa til endurnýtanleg skills í Claude eða sambærileg vinnusnið í ChatGPT.
Tengjast faglegu þekkingarlagi þar sem heimildir og íslenskt samhengi skipta máli.
Tvær lotur. Ein vika til að prófa á milli.
- Hvað AI er, hvað hún er ekki og hvar áhættan liggur.
- Örugg notkun, trúnaður, Shadow AI og meðferð gagna.
- Verkefni fyrir hvern viðskiptavin, samhengi og verkefnaleiðbeiningar.
- Prompt, tveggja módela vinnulag og yfirferð niðurstaðna.
- Verklegar æfingar með sýnigögnum, reikningum og Excel.
- Endurtekin vinnuferli, sniðmát og skills.
- Afstemmingar, mánaðarlok og gátlistar.
- VSK-spurningar, minnisblöð og samskipti við viðskiptavini.
- Fagþekkingarlag og tenging með MCP, sýnt í Claude.
- Eigið vinnulag, gæðagátlisti og næstu skref.
Raunhæf verkefni, án raunverulegra trúnaðargagna.
Allar æfingar byggja á tilbúnum sýnigögnum sýnifyrirtækisins Lauf og Leir ehf. Engin raunveruleg viðskiptavinagögn eru notuð.
Yfirferð sýnireikninga
Æfing með sýnigögnum
Afstemming úr Excel
Æfing með sýnigögnum
Mánaðarlokagátlisti
Æfing með sýnigögnum
VSK-meðferð og rökstuðningur
Æfing með sýnigögnum
Vörpun á reikningslykla
Æfing með sýnigögnum
Minnisblað til viðskiptavinar
Æfing með sýnigögnum
Gagnrýni á AI-niðurstöðu
Æfing með sýnigögnum
Lokayfirferð með mannlegri staðfestingu
Æfing með sýnigögnum
AI aðstoðar. Bókarinn ber ábyrgð.
AI má ekki taka lokaákvarðanir um bókun, VSK, skatt eða laun.
Niðurstöður gervigreindar eru drög, tillögur eða yfirferðarefni. Bókari metur forsendur, sannreynir heimildir og samþykkir lokaútkomuna.
Þú ferð heim með meira en glósur.
- Uppsett AI-vinnuumhverfi
- Verkefnasnið fyrir viðskiptavini
- Prompt-safn fyrir bókhaldsverkefni
- Gátlista fyrir gæðamat
- Sýniskjöl, reikninga og Excel-æfingar
- Endurnýtanlegt skill eða vinnusnið
- Sex mánaða aðgang að þátttakendagátt
- Aðgang að faglegu þekkingarlagi Greindar samkvæmt skilmálum vinnustofunnar
Það sem þú þarft að hafa með þér.
- Fartölvu
- Virka áskrift að Claude eða ChatGPT
- Aðgang að eigin tölvupósti
- Vilji til að læra nýja hluti og prófa
Tryggðu þér sæti.
Verkleg vinnustofa í tveimur lotum, í litlum hópi þar sem hver þátttakandi fær athygli. Veldu staðnám í Reykjavík eða fjarnám í beinni á Zoom. Dagsetningar og laus sæti eru á skráningarsíðunni.
Gott að vita
Þarf ég að hafa notað AI áður?
Nei. Vinnustofan byrjar á grunninum og fer hratt yfir í verklega vinnu.
Þarf ég að vera með áskrift?
Já. Þátttakandi þarf virka áskrift að Claude eða ChatGPT.
Notið þið Claude eða ChatGPT?
Sýnikennslan fer fram í Claude, verkfærinu sem við notum sjálf í daglegri vinnu. ChatGPT-áskrift dugar jafn vel og við sýnum hvernig sömu verkefni eru leyst í ChatGPT þegar það á við.
Notum við raunveruleg gögn viðskiptavina?
Nei. Við vinnum með tilbúin sýnigögn og ræðum hvernig rétt er að meðhöndla raunveruleg gögn.
Er þetta námskeið eða vinnustofa?
Þetta er verkleg vinnustofa í litlum hópi. Þátttakendur vinna sjálfir í eigin verkfærum.
Þarf ég að koma með fartölvu?
Já. Vinnustofan er verkleg og þú vinnur á eigin fartölvu, hvort sem þú ert í staðnámi eða fjarnámi. Hafðu samband við sverrir@greind.com fyrir vinnustofuna ef þú þarft aðstoð við uppsetningu eða áskrift.
Hvernig fer fjarnámið fram?
Fjarnámið fer fram í beinni á Zoom. Þátttakendur mæta í báðar lotur með sama hópi. Um er að ræða verklega vinnustofu, ekki upptökur eða sjálfsnám. Þú þarft fartölvu, stöðuga nettengingu og virka áskrift að Claude eða ChatGPT. Zoom-hlekkurinn birtist í þátttakendavefnum áður en vinnustofan hefst.
Hver er munurinn á staðnámi og fjarnámi?
Efnið, kennslan í beinni, litli hópurinn, 2 × 3 klst., verðið og sex mánaða aðgangur að þátttakendavef eru þau sömu í báðum leiðum. Staðnámið er í Reykjavík og þar fylgir morgunverður og kaffi. Fjarnámið er á Zoom og því fylgir enginn veitingahluti.
Hvað fylgir eftir vinnustofuna?
Sex mánaða aðgangur að þátttakendagátt, efni, sniðmátum og þeim Greind-lausnum sem skilgreindar eru fyrir vinnustofuna.