Skilmálar vinnustofa
Almennir skilmálar um vinnustofur Greindar.
Síðast uppfært: 9. september 2026
Gildissvið
Skilmálarnir gilda um vinnustofur Greindar ehf., kt. 440413-0840, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, sem skráð er á í gegnum greind.com.
Skráning og greiðsla
Skráning fer fram á vefnum. Verð, dagsetningar og annað fyrirkomulag er eins og fram kemur á vefnum hverju sinni. Verð og dagsetningar geta breyst án fyrirvara. Staðfest skráning heldur þó því verði sem gilti þegar hún var gerð. Greiðsla fer fram með kröfu í heimabanka greiðanda. Sæti er frátekið við skráningu og staðfest við greiðslu. Aðgangur að þátttakendagátt er veittur eftir að greiðsla er staðfest og gildir í þann tíma sem fram kemur á vefnum. Allar innskráningar í gáttina eru varðar með tvíþættri auðkenningu.
Framkvæmd: staðnám og fjarnám
Vinnustofur eru haldnar í staðnámi eða í fjarnámi í beinni á Zoom. Framkvæmdin kemur fram við hverja dagsetningu á skráningarsíðunni og í staðfestingu skráningar. Í báðum leiðum er um að ræða verklega vinnustofu í beinni kennslu með sama hópi í báðum lotum, ekki upptökur og ekki sjálfsnám. Námsefnið, lengd lotanna, hámarksfjöldi þátttakenda, verð og aðgangur að þátttakendavef eru þau sömu.
Í staðnámi kemur staðsetning fram við dagsetninguna og veitingar eru innifaldar eins og fram kemur á vefnum. Í fjarnámi eru engar veitingar innifaldar og þátttakandi þarf stöðuga nettengingu. Hlekkur á Zoom-fundinn birtist í þátttakendavefnum áður en vinnustofan hefst og er ekki sendur í tölvupósti. Hlekkurinn er persónulegur aðgangur þátttakanda og óheimilt er að deila honum.
Kröfur til þátttakenda
Þátttakandi kemur með fartölvu og hefur virka áskrift að Claude eða ChatGPT. Sýnikennsla fer að jafnaði fram í Claude og hliðstæðar leiðir í ChatGPT eru sýndar eftir því sem við á. Greind er óháð þessum þjónustum og ber ekki ábyrgð á aðgangi, verði eða virkni þeirra. Í æfingum skal ekki nota raunveruleg trúnaðargögn viðskiptavina, heldur gervigögn.
Notkun námskeiðsefnis Greindar
Námskeiðsefni Greindar er varið af höfundarrétti. Með efni er átt við glærur, skjöl, sniðmát, gátlista, prompt, Skills, sýnigögn, upptökur af efni og annað það sem Greind lætur þátttakendum í té fyrir, á meðan á vinnustofunni stendur eða eftir hana, hvort sem það er afhent á staðnum, í fjarnámi eða í þátttakendavefnum.
Persónulegur og óframseljanlegur aðgangur
Aðgangur þátttakanda að þátttakendavefnum og efni hans er persónulegur og óframseljanlegur. Aðgangurinn er bundinn við þann einstakling sem skráður er sem þátttakandi. Óheimilt er að deila innskráningu, hlekkjum, aðgangsorðum eða Zoom-hlekk með öðrum, hvort sem er innan eða utan þess fyrirtækis sem þátttakandi starfar hjá.
Heimil notkun
Þér er heimilt að nota þekkingu, vinnuaðferðir, prompt og sniðmát námskeiðsins í eigin starfi og við innri verkefni þess fyrirtækis sem þú starfar hjá. Það felur í sér að aðlaga efnið að eigin verkefnum og nota það í daglegri vinnu. Þessi heimild nær til notkunar, ekki til dreifingar.
Óheimil notkun
Óheimilt er, nema með fyrirfram skriflegu leyfi Greindar, að:
- deila aðgangi að þátttakendavefnum eða veita öðrum aðgang að efninu,
- dreifa, selja, leigja eða afhenda námskeiðsgögn til þriðja aðila,
- birta efnið opinberlega, í heild eða að hluta,
- nota efnið að verulegu leyti við gerð, sölu eða kennslu annarra námskeiða, vinnustofa eða þjálfunar,
- taka upp kennslustundir í hljóði eða mynd, í staðnámi eða á Zoom, eða miðla slíkum upptökum.
Þetta á jafnt við um efnið óbreytt og efni sem er endurorðað eða endurhannað að því marki sem það byggir að verulegu leyti á námskeiðsefni Greindar.
Trúnaður innan hópsins
Vinnustofan er haldin í litlum hópi og þátttakendur ræða oft eigin verkefni og áskoranir. Það sem aðrir þátttakendur segja um sín mál er trúnaðarmál og óheimilt er að miðla því áfram.
Gögn í æfingum
Við æfingar skal eingöngu nota tilbúin eða ópersónugreinanleg gögn. Óheimilt er að setja raunveruleg trúnaðargögn viðskiptavina, persónuupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn inn í gervigreindarverkfæri í æfingum vinnustofunnar. Þátttakandi ber ábyrgð á því hvaða gögn hann setur inn í eigin verkfæri.
Fagleg ábyrgð
Vinnustofan er fræðsla. Hún er ekki bókhalds-, skatta- eða lögfræðiráðgjöf og kemur ekki í stað slíkrar ráðgjafar.
Gervigreind getur skilað röngum niðurstöðum og kemur ekki í stað faglegs mats. Þátttakandi ber sjálfur ábyrgð á faglegri yfirferð, á því að niðurstöður séu réttar og á eigin ákvörðunum og vinnu.
Breytingar
Greind getur gert minniháttar breytingar á dagskrá og framkvæmd vinnustofu.
Afbókun og greiðslur
Um afbókanir og breytingar gilda afbókunar- og greiðsluskilmálar Greindar. Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna Greindar.
Hafa samband
Spurningar má senda á sverrir@greind.com.