Stefna og viðskiptavirði
Hvaða markmið á gervigreind að styðja og hvernig tengist hún því hvernig fyrirtækið skapar virði? Án þeirrar tengingar verða AI-verkefni tilviljanakennd.
Afmarkað stjórnendaverkefni sem kortleggur stöðuna, greinir raunhæf tækifæri og skilar forgangsraðaðri leið áður en ráðist er í stærri fjárfestingar eða innleiðingar.
Flest fyrirtæki vantar ekki fleiri AI-tól.
Þau vantar skýra mynd af því hvert á að stefna.
Árangur í gervigreind byrjar ekki á því að velja tól. Hann byrjar á því að skilja markmiðin, vinnulagið, þekkinguna, gögnin, ábyrgðina og getu fyrirtækisins til að breyta því hvernig unnið er.
Matsramminn tekur meðal annars til:
Hvaða markmið á gervigreind að styðja og hvernig tengist hún því hvernig fyrirtækið skapar virði? Án þeirrar tengingar verða AI-verkefni tilviljanakennd.
Hvernig fer vinnan raunverulega fram í dag? Gervigreind getur aðeins stutt vinnulag sem er skiljanlegt, og oft liggja stærstu tækifærin í ferlunum sjálfum.
Hvar býr þekking fyrirtækisins og hvaða gögnum er hægt að treysta? Aðgengileg, rétt og rekjanleg þekking er hráefni allrar gagnlegrar gervigreindar.
Er starfsfólk tilbúið til að nýta gervigreind í daglegri vinnu? Traust, þjálfun og öruggt vinnulag ráða miklu um hvort breytingin festist í sessi.
Hver ber ábyrgð á notkun, kostnaði og niðurstöðum? Skýrt eignarhald og skynsamlegar reglur draga úr áhættu og gera árangur mælanlegan.
Hvaða kerfi, tengingar og geta til breytinga eru til staðar? Raunhæf leið tekur mið af því sem fyrirtækið getur raunverulega framkvæmt.
Greind sér um greiningu, úrvinnslu og framsetningu. Stjórnendateymið leggur til þátttöku, gögn og samhengi.
Markmið, umfang, þátttakendur og forsendur skilgreindar.
Samtöl við stjórnendur og lykilfólk ásamt yfirferð á fyrirliggjandi gögnum.
Styrkleikar, veikleikar, áhættur og óvissa kortlögð.
Raunhæf tækifæri greind með stjórnendateyminu.
Virði, fyrirhöfn, áhætta, traust og innleiðingargeta metin.
Stjórnendaskýrsla, forgangskort og Vegvísir kynnt fyrir stjórnendateymi.
Niðurstaðan er sjónræn, rekjanleg og byggð til að styðja ákvarðanir. Ekki enn ein ráðgjafaskýrslan sem fer í skúffuna.
Stutt og skýr samantekt fyrir stjórnendur.
Sameiginleg mynd af því hversu sterkar forsendurnar eru.
Sýnir hvar styrkleikar, veikleikar og áhættur liggja.
| AI leit í skjölum | Hátt |
| Sjálfvirk skýrslugerð | Hátt |
| Spurt og svarað | Mið |
Skipulögð skrá yfir raunhæf AI-tækifæri.
Sýnir hvað á að gera fyrst, síðar eða alls ekki núna.
Forgangsröðuð leið sem tengir verkefni við forsendur og markmið.
Efni sem styður umræðu, samþykktir og fjárfestingarákvarðanir.
Niðurstöður kynntar, ræddar og næstu skref fest.
Mosi fylgir Vegvísisverkefninu frá fyrsta fundi. Hann safnar saman fundum, ákvörðunum, forsendum, tækifærum, aðgerðum og óleystum atriðum svo samhengi verkefnisins glatist ekki.
Engar hugbúnaðarþóknanir og engin binding við einn framleiðanda.
Byggt á markmiðum, vinnulagi, gögnum og ákvörðunum.
Skýr forgangsröðun og raunhæf næstu skref.
Umfang er skilgreint áður en verkefnið hefst. Greind sér um greiningu, úrvinnslu og framsetningu. Stjórnendateymið leggur til þátttöku, gögn og samhengi.
Nei. Þetta er stjórnenda- og rekstrarverkefni með tæknilegum þáttum.
Nei. Vegvísirinn hentar bæði fyrirtækjum sem eru að byrja og þeim sem eru með margar dreifðar tilraunir.
Nei. Greind er ekki bundið einum framleiðanda og velur lausnir út frá þörfum verkefnisins.
Fyrirtækið ræður næstu skrefum. Greind getur aðstoðað við afmörkuð framhaldsverkefni, en engin skylda er til áframhaldandi samstarfs.
Mosi er verkefnaminni sem varðveitir samhengi Vegvísisverkefnisins. Lesa meira um Mosa →
Byrjum á stuttu samtali um stöðuna, markmiðin og hvort Vegvísirinn er rétta fyrsta skrefið.