Kjarni · Þekkingarlag fyrirtækisins
Þekking fyrirtækisins, tilbúin fyrir gervigreind.
Kjarni tengir gervigreind við samþykktar heimildir, réttindi og vinnulag fyrirtækisins. Starfsfólk og AI-lausnir fá betri svör, með sýnilegum heimildum og án bindingar við eitt verkfæri.
Gervigreind veit ekki sjálfkrafa hvað gildir hjá þér.
Hún veit ekki hvaða verklag er samþykkt, hvaða útgáfa skjals er rétt, hvaða samningar gilda eða hvaða starfsmaður má sjá hvaða upplýsingar.
Þekkingin er oft dreifð um skjöl, tölvupóst, kerfi og höfuð lykilstarfsfólks. Án sameiginlegs grunns verða svör ósamræmd og erfitt að sjá hvaðan þau koma.
Einn traustur grunnur undir AI-vinnuna.
Kjarni er ekki bara spjall við skjalasafn. Hann sameinar efnisöflun, skipulagningu, réttindi, leit, heimildir, gæðamat og tengingar við þau AI-verkfæri sem fyrirtækið velur að nota.
Samþykkt efni fyrirtækisins
Efni flokkað, merkt og yfirfarið
Hver má sjá og nota hvað
Þekkingarlag fyrirtækisins
Claude, ChatGPT, sérhæfðir aðstoðarmenn
Notandinn sér hvaðan svarið kemur
Traustið skiptir öllu. Það er áunnið, ekki úthlutað.
Traustar heimildir
Svör byggja á samþykktu og uppfærðu efni.
Réttindi og afmörkun
Notendur og kerfi sjá aðeins það sem þau hafa heimild til að nota.
Sýnilegar heimildir
Notandinn getur séð hvaðan svar eða fullyrðing kemur.
Samræmd þekking
Sama regla og sama verklag birtist óháð því hver spyr.
Tenging við vinnuumhverfið
Kjarni er hannaður til að tengjast Claude, ChatGPT, sérhæfðum aðstoðarmönnum og agentum þegar það á við.
Viðhald og vottun
Heimildir eru yfirfarnar, uppfærðar og merktar eftir stöðu og trausti.
Þegar rétt þekking þarf að fylgja vinnunni.
Innri spurningar og svör
Starfsfólk finnur samþykkt svör með heimildum.
Onboarding og þjálfun
Nýtt starfsfólk fær hraðari aðgang að verklagi og samhengi.
Fagleg vinna
Sérhæfð þekking, lög, reglur og verklag fylgja verkefninu.
AI-agentar
Agentar fá aðgang að afmörkuðu og stýrðu samhengi.
Þjónusta
Samræmdari svör byggð á samþykktu efni.
Verkefni
Ákvarðanir og forsendur varðveittar yfir líftíma verkefnis.
Byrjum afmarkað og mælum það sem skiptir máli.
Afmörkun
Notkunartilvik, heimildir, notendur og réttindi skilgreind.
Uppbygging
Efni sótt, skipulagt, skipt niður og tengt við heimildir.
Tenging
Kjarni tengdur við valið viðmót eða vinnuferli.
Prófun og afhending
Svör, heimildir, réttindi og gæði prófuð með raunhæfum verkefnum.
Opnir innviðir, skiptanlegir íhlutir.
Kjarni getur nýtt vektorleit, RAG, embeddings, MCP og API-tengingar eftir þörfum. Tæknin er valin út frá öryggi, umhverfi og framtíðaráformum viðskiptavinarins.
Spurt um Kjarna
Er Kjarni annað skjalasafn?
Nei. Kjarni situr yfir eða tengist fyrirliggjandi heimildum og gerir þær nýtanlegar fyrir gervigreind.
Kemur Kjarni í stað SharePoint, Google Drive eða annarra kerfa?
Yfirleitt ekki. Hann getur tengst fyrirliggjandi umhverfi og unnið með það.
Getur Kjarni tengst Claude eða ChatGPT?
Hann er hannaður til að tengjast AI-verkfærum með viðeigandi tengingum, til dæmis MCP eða API.
Hvar eru gögnin vistuð?
Það er ákveðið fyrir hvert verkefni. Lausnin getur verið í umhverfi viðskiptavinar eða í sérsamþykktu hýsingarumhverfi.
Svarar Kjarni alltaf rétt?
Nei. Heimildir, gæðamat og mannleg yfirferð draga úr áhættu, en gervigreind þarf áfram eftirlit.