Greind/Um Greind
Um Greind

Óháður samstarfsaðili um gervigreind í rekstri.

Greind hjálpar fyrirtækjum að nýta gögn, þekkingu og gervigreind til að taka betri ákvarðanir og bæta vinnulag. Við vinnum á mörkum rekstrar, fjármála, gagna og tækni, án bindingar við einn hugbúnaðarframleiðanda.

Sverrir Berg Steinarsson, stofnandi Greindar
Á bak við Greind

Sverrir Berg Steinarsson

Stofnandi og ráðgjafi

Bakgrunnur Sverris liggur í rekstri, fjármálum og gögnum, gagnavöruhúsum, KPI og stjórnendaupplýsingum. Hann hefur unnið með stjórnendum að því að breyta gögnum í betri ákvarðanir og þekkir af eigin raun hvað þarf til að upplýsingar verði áreiðanlegar og nýtanlegar.

Greind sprettur úr þeirri reynslu. Gervigreind skilar ekki virði fyrr en markmið, vinnulag, þekking, gögn og ábyrgð eru í lagi. Þess vegna nálgast Greind verkefnin frá rekstrinum, ekki frá einu ákveðnu tæki eða módeli.

Hvernig Greind vinnur

Þrjár meginreglur.

01

Greining á undan innleiðingu

Skiljum vandamálið og forsendurnar áður en lausn er valin.

02

Opnir og skiptanlegir innviðir

Viðskiptavinurinn á að geta þróað lausnina áfram án óþarfa bindingar.

03

Mannleg ábyrgð

AI styður ákvarðanir og vinnu, en ábyrgðin er áfram hjá fólki.

Næsta skref

Ræðum hvar Greind getur hjálpað.